Hangikjöt með bechamel sósu, eplasalati og heimalöguðu hátíðarrauðkáli

Hráefni

Kjötið

  • Hangikjöt, frampartsrúlla

Setjið hangikjötið í pott með köldu vatni og náið upp suðu rólega, í 25-35 min. Lækkið hitann, setjið kjöthitamæli í kjötið og látið sjóða þar til kjötið nær 68°c kjarnhita. Það tekur rúmlega 2 hálfan tíma, en miðað er við 40mín per kíló. Þegar kjötið er soðið takið pottinn af hellunni og látið kjötið kólna í pottinum.

Eplasalat

  • 2 epli
  • 1 dolla sýrður rjómi 36%
  • 6msk rjómi
  • 1 1/2msk hlynsýróp
  • 1askja rauð jarðaber
  • 4msk pecanhnetur
  • 2 msk hunang
  • 10 stilkar  dill
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • 1/2tsk salt

    Hitið ofninn á 160°C. Setjið pecanhnetur á plötu með bökunarpappír og hellið hunangi yfir. Bakið í 10 mín. Eplin eru skorin í lita teninga og jarðaberin skorin í fernt. Þeytið létt saman sýðran rjóma, hlynsýróp og rjóma. Saxið niður pecanhnetur og blandið öllu hráefninu saman í skál. Stráið örlitlu af hnetunum og dilli yfir.

Hátíðarrauðkál

  • 1/2 stór rauðkálshaus
  • 3 stk anís stjörnur
  • 1 stöng kanill (eða 1 msk kanilduft)
  • ½ stk  grænt epli
  • 1 dl eplaedik
  • 1 dl krækiberjavín eða krækiberjasaft
  • 45gr Appelsínusafi úr 1 appelsínu
  • 2 skræl af appelsínubörk
  • 1 dl vatn
  • 1/2 tsk salt
  • 1 msk bláberjasulta
  • 2msk af púðursykur eða eftir smekk

    Saxið rauðkálhausinn í grófa strimla eða notið mandolín. Skrælið hýðið af eplinu og skerið í litla bitabita. Skrælið börk af appelsinunni og kreystið safann úr henni. Setjið allt hráefnið í pott og sjóðið í um klukkustund. Smakkið rauðkálið til eftir rúman hálftíma, gæti vantað púðursykur ef rauðkálið er of súrt eða edik ef það er of sætt, fer eftir smekk.

Jafningur

  • 25gr smjör
  • 25gr hveiti
  • 3,5dl mjólk
  • 1tsk múskat
  • 1msk sykur
  • ½ tsk Salt
  • soðnar kartöflur

Hitið smjörið upp í potti og bætið hveitinu út í. Hrærið mjólkinni hægt út í smjörbolluna, rúmlega ½ dl í einu og hrærið vel á milli. Bragðbætið með múskati, salti og sykri. Bætið kartöflunum út í.