Innralæri

Hráefni

Kjötið

  • 2 stk innralæri
  • Ólifuolía
  • 1/2 tsk fennel fræ
  • 1/2 dill fræ
  • 1 stk kanil stöng
  • Salt og pipar

Byrjið á því að dressa innralærið með ólífuolíu, þvi næst kryddið kjötið vel með fennelfræjum, dillfræjum, kanil, salti og pipar og nuddið kryddunum vel í kjötið. Gulræturnar, nípan, laukurinn og sveppirnir eru sett í botninn á ofnskúffu og dressuð með ólifuoliu, siðan er grænmetið kryddað með salti og pipar, blóðbergi og hvítlukurin settur með. Setjiði innralærið á sjóðandi heita pönnu og steikið það í tvær mínútur á hvorri hlið eða þar til kjötið hefur lokast og náð góðum brúnum lit. Því næst er kjötið sett í ofnskúffu ofan á beð af rótargrænmeti og lambasoði hellt í ofnskúffuna. Setjið kjötið inn í 120 gráðu heitan, forhitaðan ofn og bakið þar til kjarnhitinn er kominn í 58-60 gráður, eða í um 40 mínútur. Þegar innralærið er tilbúið færið þið það yfir á fat eða fallegan disk ásamt rótagrænmetinu.

Ofnbakað grænmeti

  • 4 stk gulrætur
  • 2 stk nípur
  • 4-6 stk shallot eða perlulaukur
  • 200g Flúðasveppir
  • 500 ml lambasoð eða vatn
  • Ólifuolía
  • Salt og pipar
  • 5-6 greinar garðablóðberg
  • 1 heill hvítlaukur skorinn í 1/2

Gulrætur, fennel og epli eru skorin þunnt í mandólini og sett í skál. Appelsínan er skræld og skorin í báta, siðan er henni bætt út í skálinna ásamt dill toppum og svo er allt saman dressað með ólífuolíu, sítrónusafa og salti.

Sósan

  • 100g hveiti
  • 100g smjör
  • 100ml rjómi
  • 2 msk rifsberjahlaup
  • Salt og pipar

Hellið vökvanum af lærinu í pott í gegnum sigti og hitið uppá. Gerið smjörbollu úr hveiti og smjöri, bætið henni útí smá í einu eða þar til sósan er orðinn hæfilega þykk. Setjið rjómann og rifsberinn útí og smakkið til með salti og pipar þar til sósan er klár.

Gulróta og fennel salat

  • 3 stk gulrætur, skrældar
  • 1 stk fennel
  • 1 stk grænt epli
  • 1 stk appelsína
  • 1/2 búnt dill
  • 20 ml góð ólifuolía
  • 10 ml sítrónusafi salt

Gulrætur, fennel og epli eru skorin þunnt í mandólini og sett í skál. Appelsínan er skræld og skorin í báta, siðan er henni bætt út í skálinna ásamt dill toppum og svo er allt saman dressað með ólífuolíu, sítrónusafa og salti.

Sykurbrúnaðar kartöflur

  • 1 kg soðnar kartöflur, flysjaðar
  • 1 dl sykur eða hrásykur
  • 50 g smjör
  • 25g rjómi

Brúnið sykurinn á pönnu (fylgist vel með svo sykurinn brenni ekki). Bætið smjörinu og blandið með sleif. Bætið rjómanum út í og hrærið uns allt hefur sameinast. Bætið kartöflunum í og látið krauma við vægan hita þar til kartöflurnar eru vel hjúpaðar.

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vafrakökur.​