Rjómalagaður pottréttur

Hráefni

Pottrétturinn

  • 200 gr lambagúllas eða annað lambakjöt
  • 1/2 laukur
  • 1 lítil gulrót
  • 50 gr seljurót
  • 2 msk olía
  • 2 msk eplaedik
  • 1 timjanstilkur
  • 1 msk grænn pipar í krukku
  • 100 ml lamba eða grænmetissoð
  • 100ml rjómi

Skerið niður grænmetið og steikið í potti í 3 mínútur. Fjarlægið grænmetið úr pottinum og steikið kjötið í 3 mínutur. Bætið við ediki og soði og sjóðið í 5 mínútur. Bætið við grænmetinu og rjóma og sjóðið í 10 mínútur. Bragðbætið sem salti og pipar.

Bakaðar parmesan kartöflur

  • 200 gr kartöflur
  • 50 ml olívu olía
  • Sjávarsalt
  • 4 msk rifinn parmesan ostur

Sjóðið kartöflurnar í 20 mínútur, sigtið og þurrkið. Setjið kartöflurnar í eldfast mót og kreistið þær létt til þess að rífa skinnið. Veltið upp úr olíu og salti og bakið í 15 í 180°C heitum ofni, snúð þeim einu sinni eftir rúmlega 7 mínútur. Rífið parmesanost yfir kartöflurnar áður en þær eru bornar fram.