Innralæri með Gremolata

Hráefni

Kjötið

  • 1 innralæri 400 g
  • 3 msk Olivu olía
  • Salt of pipar

Nuddið kjötið upp úr olíunni og kryddið með salti og pipar. Steikið báðar hliðar á pönnu áður en þið setjið innralærið í eldfast mót. Eldið í ofni á 180°C í 20-25 mínútur, látið kjötið hvíla í 10 mínútur og skerið áður en kjötið er borið fram.

Gremolata

  • 1 knippi ítölsk steinselja, söxuð
  • 1 hvítlauksgeiri, rifinn
  • Rifinn börkur af 2 sítrónum

Blandið öllum hráefnunum saman og geymið í ískáp þar til rétturinn er borinn fram.

Kartöflusalat

  • 400 gr soðnar kartöflur skornar í tvennt.
  • 100 gr grænar ólivur
  • 2 msk capers
  • 2 msk ítölsk steinselja
  • 1 msk dijon sinnep
  • 1 msk hunang
  • 4 msk olívu olía

Blandið öllum hráefnunum saman og kryddið til með salti og pipar.

Grillað brokkolí

  • 1 Brokkolíhaus
  • 2 msk olívu olía
  • sjávarsalt

Skerið blómkálið niður í sæmilega stóra bita, setjið á bökunarplötu með bökunarpappír. Veltið upp úr olíu og sjávarsalti. Bakið í 15 mínútur í 180°C heitum ofni.

Sæt tómatsósa

  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1/2 laukur skorinn smátt
  • 1 Hvítlauksgeiri, rifinn
  • 1/2 msk oregano krydd
  • 2 msk Hunang

Steikið laukinn og hvítlauk á pönnu í 2 mín, bætið við ediki, tómötum, hunangi og oregano. Látið malla í 10 mínútur.